Prófíll

  • Nafn: FC Sveinţór

Auglýsing

Stjórn FC Sveinţórs

Meiđslalistinn

Innskráningar kubbur

Hlutir ađ gerast hjá FC Sveinţóri

07. september 2010 klukkan 22:04
Sælir.
Nú eru hlutirnir heldur betur að gerast hjá FC Sveinþóri. Við höfum fengið inngöngu í Vetrardeild Carlsberg sem hefst um miðjan október. Þegar hafa flestir "samningar" við leikmenn FC Sveinþórs verið framlengdir, þó með þeim fyrirvara að menn komist bara þegar þeir geta í vetur. Það er auðvitað ákveðinn kjarni sem mætir í alla leiki og því lítil hætta á að við lendum í vandræðum með að manna leiki í þessari deild og því bara spennandi að taka þátt í henni. Meiri upplýsingar koma um hana seinna. Ég hef þegar fengið jákvætt svar frá 28 leikmönnum, en eins og áður segir hafa mjög margir sett fyrirvara um að þeir komist ekki í hvern einasta leik.

Við ætlum að vera með æfingar á miðvikudögum í vetur, a.m.k. fyrir jól, með þeim fyrirvara að þegar við eigum leik á miðvikudegi fáum við að færa æfinguna okkar til í Kórnum. Gengið var frá samningum um það í dag við Kór-stjórann. Ég hef þegar fengið jákvætt svar frá 19 manns sem vilja endilega vera með og jafnvel ennþá fleiri sem vilja vera með þegar við færum æfingar á önnur kvöld.

Lokahóf FC Sveinþórs verður haldið helgina 17.-19. september. Ég er þegar kominn með upplýsingar um 14 manns sem ætla mjög líklega eða örugglega að mæta þangað.

Um nánast allt sem við gerum fer í events á facebook hjá mönnum og því er um að gera að svara þar, því draumurinn er auðvitað að menn geti kíkt á facebook áður en þeir fari á æfingu og séð hversu margir ætli að mæta það skiptið. Þess vegna er mjög mikilvægt að skráningin þar sé rétt.

Sjáumst hressir og kátir á fyrstu æfingu vetrarins á morgun miðvikudag kl. 21.

Kv. Heimir.
FC Sveinţór

Tölfrćđi sumariđ 2010

13. ágúst 2010 klukkan 20:29

Sælir strákar.

Nú er þáttöku okkar lokið í Carlsbergdeildinni þetta sumarið.

Og því er við hæfi að skella inn smá tölfræði eftir sumarið.

.... inní sviga fyrir aftan kemur svo heildartala, bæði fyrir sumarið í ár og í fyrra.


Leikjahæstu menn:

Andri Björn Úlfarsson 9 (19)
Ólafur Jóhann Júlíusson 9 (19)
Guðjón Hall Sigurbjörnsson 9 (18)
Aron Örn Þórarinsson 9 (14)

Markahæstu menn:

Aron Örn Þórarinsson 9 (11)

Flestar stoðsendingar:

Aron Örn Þórarinsson 5 (8)
Páll Vilhjálmsson 5

Mörk fengin á sig:

Kem Karl Torres La-Um 15 (27)


Spjaldahæstu menn:

Ólafur Jóhann Júlíusson , 2 Gul. (3 Gul)

FC Sveinţór

Bein textalýsing: FC Sveinţór - FC Miroslav (leik lokiđ)

07. ágúst 2010 klukkan 13:11
0"  Velkomin í beina textalýsingu af leik FC Sveinþórs og FC Miroslav hér í Mosfellsbænum. Leikurinn fer fram á heimavelli Sveinþórsmanna en hér hafa þeir lagt tvo andstæðinga á síðustu vikum. Rigning er og meiri rigning væntanleg. Þetta verður blautur leikur.

0"  Upphitun er lokið en Heimir þjálfi er hvergi sjáanlegur á svæðinu. Guðjón þarf að taka völdin og peppa menn upp fyrir leikinn. Byrjunarliðið er þannig skipað að Óli Jó er í marki, Hermann og Paulo í vörn, nýi leikmaðurinn Jörn er á vinstri kantinum og Andri Þór á þeim hægri. Guðjón inni á miðjunni og Bjarki er framherji.

3"  Leikurinn fer vel af stað og Sveinþórsmenn halda boltanum vel.

5"  Guðjón kemst framhjá vörn Miroslava en skot hans fer framhjá.

10"  MAAARK!! Miroslavar komast í sína fyrstu sókn og eftir misskilning í vörn Sveinþórs um hver á hvaða mann skorar Rauða hættan. 0-1 gegn gangi leiksins.

16"  MAAAAARK!! Miroslavar hafa gengið á lagið og nýta sér óöryggi í öftustu vörn Sveinþórs. 0-2.

17"  Þjálfari FC Sveinþórs mætir á svæðið svefndrukkinn, úff þetta á eftir að kosta hann nokkra bjóra!!

18"  MAARK!! Guðjón setur mark eftir gott spil við samherja sína. Það er nóg eftir af þessum leik og staðan orðin 1-2.

20"  MAAARK!! Miroslavar ætla að halda áfram uppteknum hætti og skora þriðja markið sitt eftir hraða sókn. Leikmaðurinn með boltann dró báða varnarmennina að sér þótt ótrúlegt megi virðast og gaf svo sendingu á galopinn mann sem setti boltann í hornið framhjá Óla Jó. Eins og að drekka vatn og sjálfstraustið í vörninni getur ekki verið hátt.

20"  Þjálfi kemur inn fyrir Paulo. Þetta var óörugg vörn og sjáum hvort breytingarnar skili einhverju.

22"  Sveinþórsmenn eru farnir að spila af örlítið meiri yfirvegun núna. Leita að bestu sendingunni og spila sig í gegnum vörn Miroslava. Gölturinn á miðjunni er að stjórna spilinu vel og nær að þræða sig í gegnum vörnina en skotið geigar.

23"  MAAAARK!! Þjálfi hefur þegar sett mark sitt á leikinn þegar hann tekur hlaup upp í svæði á vinstri kantinum með boltann, fer framhjá einum, snýr við og gefur fastann bolta í áttina til Bjarka inni á teignum. Varnarmaður kemst inn í sendinguna en setur boltann klaufalega í eigið mark. 2-3 og þetta lítur allt betur út fyrir Sveinþórsmenn.

25"  MAARK!! Miroslavar nýta sér uppbótartímann í fyrri hálfleik og skora eftir að Andri Þór hafði sleppt manninum sínum úti á velli. Þjálfi hefði líka mátt gera betur í að loka á sinn mann en mark er staðreynd. 2-4.


HÁLFLEIKUR


26"  Það er greinilegt að Sveinþórsmenn hafa talað sig saman í hálfleiknum. Þeir eru óhræddir við að skjóta núna og láta reyna á markmanninn sem er greinilega óöruggur í bleytunni.

29"  MAAARK!! Sveinþórsmenn missa boltann úti á miðjum velli og fá á sig hraða sókn enn sem áður. Eftir gott spil hjá Miroslav-mönnum skjóta þeir fyrir utan. Ólafur í markinu nær ekki að halda boltanum, vörnin er sofandi fyrir því og sóknarmaður Miroslav skorar. 2-5 og það verður erfitt fyrir Sveinþórsmenn að jafna sig á þessu.

32"  Nú er rigningin orðin rosaleg, hreinlega eins og hellt væri úr fötum! Framherji Miroslava neyðist til að fara úr flíspeysunni sem hann mætti í.

34"  Þjálfi tekur til sinna ráða þegar Paulo kemur aftur inn á fyrir Jörg. Sendir Hermann úr vörninni á hægri kantinn og Andra Þór yfir á vinstri þar sem Jörg hafði verið. Paulo tekur stöðu sína aftur vinstra megin í vörninni.

35"  MAAARK!! Sveinþórs-menn sýna að enn er líf í tuskunum. Þjálfi sendi langa sendingu fram en Bjarki náði ekki að halda boltanum, eftir klafs fyrir utan teiginn berst boltinn á Andra Þór sem setur hann í hornið fjær. Klínískt klárað hjá drengnum þarna. 3-5.

37"  Úfff! Eftir flotta hornspyrnu frá Guðjóni fær Þjálfi frían skalla í teignum en nær ekki að setja nægan kraft í hann. Markmaður Miroslava á í engum vandræðum með að grípa boltann og koma honum strax í leik. Þarna hefði Þjálfinn mátt gera betur.

38"  MAAARK!! Miroslavar fara langt með að gera útum leikinn hérna. Eftir að hafa spilað upp vinstri kantinn er boltinn settur inn á miðjuna og hamraður inn þaðan. 3-6.

40"  Það er greinilegt að breytingarnar hafa gefist vel. Þjálfa líður betur á sínum stað hægra megin í vörninni og Hermann er að spila vel á hægri kantinum og dettur vel til baka í sóknum Miroslava, en þeir síðastnefndu eru alls ekki að spila vel þessa stundina. Nú er lag fyrir Sveinþórsmenn að keyra á þá síðustu 10 mínúturnar og vinna upp muninn.

42"  MAARK!! Sveinþórsmenn eru að spila eins og þeir sem valdið hafa, sérstaklega Guðjón á miðjunni sem er hreinlega að eiga einn af sínum bestu leikjum í sumar. Eftir flott spil við samherja kemst Guðjón einn á móti markmanni, fer framhjá honum og setur boltann auðveldlega í hornið. FLott mark hjá aðstoðarþjálfaranum sem er búinn að skila góðu dagsverki. 4-6.

45"  Jörg kemur aftur inn, að þessu sinni fyrir Bjarka framherja, sem hefur verið að skapa vel frammi þó hann hafi ekki náð að skora. Gölturinn er orðinn graður í að setja fleiri mörk fyrir liðið og hendir Jörg inn á miðjuna og bregður sér í sóknina. Þegar á reynir er Guðjón þó kominn aftur í holuna og enginn frammi um tíma.

47" MAAARK!! Sveinþórsmenn ætla að setja spennu í þetta í lokin. Eftir háa sendingu djúpt utan af kanti inn í teiginn kemur Hermann og skorar draumamark þegar hann sneiðir boltann í fjærhornið með pönnunni. Þvílík afgreiðsla!!! Sjálfur Alan Shearer hefði verið fullkomlega sáttur við þetta! 5-6 og Miroslavar eru farnir að tala um að halda þetta út.

49"  Miroslavar virðast ætla að halda þetta út. Andri þór keyrir inn í framherja Miroslava og boltinn fer útaf í innkast. Þeir reyna að tefja með því að liggja á vellinum en tímavörðurinn sér í gegnum þá og bætir við klukkuna. Þetta var ekki einu sinni aukaspyrna, Andri fór bara í boltann.

50"  Þjálfi reynir að setja fastann bolta inn í teiginn í von um að minnsta snerting geti komið boltanum í markið. Gengur ekki og Miroslavar bomba boltanum fram á völlinn.

50"  Aftur er þjálfi með boltann og mikið svæði fyrir framan sig. Hann setur langan bolta fram og markmaður Miroslava virðist ekki viss hvort boltinn sé á leið yfir eða á Jörn sem kom þarna inn af kantinum. Boltinn lendir í jörðinni og spýtist rétt framhjá stönginni. Þarna munaði ekki miklu.

LEIK LOKIÐ!!

Miroslavar vinna leikinn en naumt var það. Sveinþórsmenn sýndu gríðarlegan karakter að komast aftur inn í leikinn í stöðunni 3-6 en að lokum voru það mörkin sem þeir fengu á sig í fyrri hálfleik sem gerðu útslagið. Tekin var vítaspyrnukeppni til að lyfta upp andanum í lokin.

1" Miroslavar byrja og skora úr sinni fyrstu spyrnu. Hermann tekur fyrstu spyrnu Sveinþórs og ... SKORAR!!

2" Harald þjálfari Miroslav setur boltann upp í þaknetið. Bjarki tekur næstu spyrnu Sveinþórs og skorar en tæpt var það. Markmaðurinn varði boltann í stöngina og yfir í hitt hornið.

3" Miroslavar skora og nú tekur Gölturinn knöttinn og .... SKORAR!!

4" Allir búnir að skora hingað til og Miroslavar halda því áfram. Öruggar spyrnur. Heimir þjálfi stígur á punktinn og sendir markmanninn í vitlaust horn en spyrnir boltanum fast á hitt hornið. Öruggt.

5" Miroslavi stígur upp og setur boltann fast hægra megin, Óli velur rétt horn en.... Boltinn fer í innanverða stöngina og út!! Andri Þór getur tryggt Sveinþórsmönnum sigur hér. Hann tekur langa atrennu og allt lítur út fyrir að hann ætli að negla á markið en... HANN CHIPPAR BOLTANUM Á MITT MARKIÐ OG SKORAR!! Þvílíkur nagli!

Niðurstaðan í vítaspyrnukeppninni 5-4 fyrir Sveinþórsmenn og þeir geta verið ánægðir með dagsverkið.


FC Sveinţór

Ţessi fćrsla er lćst međ lykilorđi.

29. júlí 2010 klukkan 00:47
FC Sveinţór

Ţessi fćrsla er lćst međ lykilorđi.

25. júlí 2010 klukkan 23:07
FC Sveinţór

Ćfingaleikur á mánudaginn kl. 20 - Ţeir sem mćta stađfesti

16. júlí 2010 klukkan 00:27
Sælir.
Við spilum æfingaleik við Vinningsliðið á mánudaginn næsta. Forsprakkinn þar heitir Sindri Sverrisson blaðamaður á Mogganum með meiru og ætlar að safna nokkrum strákum saman undir nafni Vinningsliðsins. Við spiluðum við þá á undirbúningstímabilinu í fyrra og töpuðum þá naumt. Gott ef þetta var ekki fyrsti leikurinn okkar ever undir nafni FC Sveinþórs. Þar skoraði undirritaður fyrsta opinbera mark FC Sveinþórs sem kom okkur 1-0 yfir. Eftir það tók að halla undan fæti enda vorum við fáliðaðir á bekknum ef ég man rétt. Leikurinn endaði samt 6-5 fyrir þeim og ætlum við klárlega að gera betur núna. Því myndi ég vilja fá ALLA sem eru lausir á mánudaginn á staðinn. Það er náttúrulega laus hálfur völlur á meðan spilað er og því geta menn haldið sér heitum með léttum skotæfingum nema VIddi ákveði að nudda þreytta fætur sem skipta sér útaf. Aldrei að vita.

En endilega setjið hér fyrir neðan hvort þið komist í leikinn, þetta verður fokking awesome!
FC Sveinţór

Leikur á fimmtudaginn - Hverjir mćta??

13. júlí 2010 klukkan 23:30
Sælir.
Við eigum leik í Carlsberg-deildinni næsta fimmtudag. Eftir slæmt gengi í síðustu 3 leikjum verðum við að taka okkur á og sýna það sem við vorum að gera í fyrstu þremur leikjunum í deildinni. Við vorum að yfirspila lið þar sem eru af svipaðri getu og þau lið sem við höfum tapað fyrir að undanförnu. Við pælum ekki í því liðna heldur horfum fram á við og reynum að gera gott úr þessu móti, enda styttist í uppskeruhátíðina okkar með hverjum leiknum sem líður.... :)

Næstu mótherjar okkar eru Black Barbara. Við vitum í raun ekkert um það lið nema að þeir hafa verið að ná ágætis úrslitum í riðlinum og eru því hraustir strákar. Það verða einhverjar nýjungar í boði hjá okkur, einhver meiðsli eru í hópnum og einhverjir erlendis í fríi þannig að við spilum úr því sem við getum og reynum að hnoða saman rétta vinningsblöndu. Munið að það á enginn áskrift að byrjunarliðssæti hjá okkur og ef spilið, baráttan eða þolið er ekki að ganga þá verðum við að gera einhverjar breytingar.

Setjið í komment hér fyrir neðan hvort þið komist á fimmtudaginn. Leikurinn byrjar kl. 21 og krefst ég þess að leikmenn sem mæta verði komnir inn í klefa í Leiknisheimilinu kl. 20:30. Þar verður kynnt til sögunnar byrjunarliðið og farið yfir þau atriði sem við verðum að hafa í lagi í leiknum.

Sjáumst á fimmtudaginn!
FC Sveinţór

Ćfingaleikur á morgun

12. júlí 2010 klukkan 23:26
FC Sveinþór mun spila æfingaleik við Varamennina á morgun þriðjudag á okkar heimavelli í Mosó. Ég myndi helst vilja fá alla sterkustu leikmenn okkar á svæðið, en ég gerði í dag könnun á því hverjir kæmust og við ættum að geta stillt upp ansi sterku liði þó að Sólmundur og Andri Björn verði að öllum líkindum báðir fjarverandi. Matti hefur líka tilkynnt að hann komist ekki. Felipe er úti og líklega Viðar líka, ég hef ekkert heyrt frá honum í smá tíma.

Þeir sem þegar hafa látið vita af því að þeir komist eru listaðir hér að neðan, vonandi bætast fleiri við þegar nær dregur. Það verða fullt af mínútum í boði fyrir alla sem mæta þannig að þið ættuð endilega að láta sjá ykkur, allir sem einn.

Palli
Paulo Gramata
Óli Jó
Guðjón
Heimir
Kem
Golli
Andri Þór
Hermann
Siggi Einar

Sjáumst á morgun, kátir að vanda! :)

FC Sveinţór

Könnun á síđunni og ferđ á Fabrikkuna

08. júlí 2010 klukkan 00:00
Sælir.
Eins og glöggir menn hafa séð er komin könnun inn á síðuna um Vetrardeild Carlsberg sem verður næsta vetur. Þetta er náttúrulega allt í ef-stíl því það er ekkert víst að við komumst inn í deildina þó að vilji sé til þess. Endilega kíkið á hana og gefið ykkar álit.

Næsta laugardagskvöld ætlum við að gera okkur glaðan dag og fara á Hamborgarafabrikkuna en til þess að geta pantað borð þurfum við að vita hversu margir ætla að láta sjá sig. Endilega látið vita hér að neðan hvort þið komist eða ekki. Pælingin var að fara að tygja sig af stað strax eftir bronsleikinn og mæta á Fabrikkuna kl. 21:30. Þeir sem vilja geta síðan tekið rútu í bæinn á eftir. Það eru einhver bjórtilboð á staðnum, stór á 595 kr og tæplega 2l. kanna á 1990 kr. þannig að þeir sem vilja bara fá sér nokkra bjóra geta ábyggilega gert það á meðan hinir troða sig út af ljúffengum borgurum.

Endilega látið vita hvort þið komist, ég vil endilega sjá sem flesta á laugardaginn. :)
FC Sveinţór

Ćfing miđvikudaginn 7. júlí 2010 - Hverjir komast??

07. júlí 2010 klukkan 01:37
Sælir.
Æfing verður á morgun 7.júlí 2010. Nú er kominn tími til að við náum að mæta fleiri Sveinþórsmenn en hefur verið hingað til! Látið vita hvort þið komist hér að neðan. Sjáumst hressir og kátir.
FC Sveinţór

Textareitur

Lykilorđiđ inn á lćstar fćrslur er fyrri hluti okkar uppáhalds styrktarađila

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Nćsti leikur !!

Könnun

Myndir ţú vera međ ef FC Sveinţór ákveđur ađ senda liđ til keppni í Carlsberg Vetrardeildina?